flutt į ašra sķšu sjį nešarKęrleiksheimur Lilju

http://audmjuk.blog.is/blog/audmjuk/

Ég er flutt á annað blogg verðum í bandi þar
Ég hefr ekki getað flutt efnið á milli vegna tæknilegrar vankunnáttu ef einhver kann þá væri það þegið hef reyntt að fara eftir leiðbeiningum á blog.is en þær hafa ekki hjálpaSkömmustulegur

KveðjaGlottandi

žaš kostar aš mķga ķ..........................Kęrleiksheimur Lilju

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.

Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni 'góðan daginn væna mín' sagði hann 'hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?'  Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna 'Æ þakka þér fyrir væni minn' stundi í konunni 'Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp' En þegar hún ætlar að leggja af stað að tína upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana

'Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af fimm þúsund köllum? Varstu að ræna banka?'
Gamla konan brosti 'nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja '5000 kr eða ég klippi hann af'

'jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi '..en hvað ertu með í hinum pokanum?'

'Það eru ekki allir sem borga...'

skošišKęrleiksheimur Lilju

http://audmjuk.blog.is/blog/audmjuk/ hér er mynd af jöklagörpum

Hetjur į HnjśknumKęrleiksheimur Lilju

Já hetjurnar mínar fóru á Hvannadalshnjúk aðfaranótt sunnudagsins. Þeir lögðu í ferðina rúmlega miðnætti, gengu í myrkri fyrsta hluta leiðarinnar komust á hnjúkinn um 9:30 og dvöldu á toppi Íslands í klukkutíma þreyttir en ofboðslega stoltir. Útsýnið var stórkostlegt merkilegt að horfa niður á  í kring en það  einstök upplifun. Niðurleiðin gekk vel en mikið voru þeir búnir á því þegar komið var í bílana. Atli svaf alla leið í Kópavoginn en Jó fékk sér einkabílstjóra til að keyra jeppann svo lúin var hann en þetta er viðburður því hann vill alltaf keyra sjálfur og keyra mikið og lengi. Bein útsending var af þessu brölti feðga og Skiptamanna (síma) en ég missti af henni En ég er búin að sjá myndir og mikið langar mig. Ég hef verið að röfla um að allir eigi að láta drauma sína rætast kannski geri ég það líka hmmmm Liljan á Hnjúkinn  hvernig hljómar það.

En áfram með smjörið feðgar voru sólbrenndir, sætir, þreyttir , glaðir upprifnir, montnir , stoltir  þegar þeir komu heim semsagt þeim leið semsagt  eins og karlmönnum. Nú er ég búin að vera að þvo og ganga frá eftir þá líður eins og konu set hér inn link af frásögn annars hóps sem ekki komst upp en lenti í hræðilegum hrakningum  http://gbo.blog.is/blog/gbo/  (Alvöru jökladrama) mikið er ég þakklát að ferðin hjá mínum mönnum gekk svona vel og þeir komu heilir heim.  Þarna eru þeir 14 og 46 ára og sí ungir

komin heimKęrleiksheimur Lilju

Við áttum yndislegar stundir í Bolungarvík það truflaði ekkert þetta bæjarstjórabrölt á pólitíkusum þarna fyrir vestan sá samt ljósan punkt það eru fleirri en ég sem vita ekkert hvað tekur við næstu daga bæjarstjórinn rekinn Lára Ómars sagði upp ég er líka að hætta á hvað kaffi húsi ætli þau hittist gaman væri að vera með.Hissa

Í Bolungarvík er yndislegt mannlíf og gott samfélag, á Sumardaginnfyrsta fóru menn og börn upp á heiði og léku sér í snjónum með hjálp snjóbíls, sleða, skíði og snjósleða ( mikil tæki langar í þannig). Íris fór nokkrar ferðir með snjóbílnum og renndi sér líka á sleða þarna var sól og dásamlegt veður gamla konan ég let sér nægja ein ferð með snjóbíl og aftur niður... góð helgi þarna´fyrir vestan takk Jóhanna og fjölsk fyrir góðar stundir

Barn dagsinsKęrleiksheimur Lilju

Í bekknum hjá Mjöllinni minni er búið að vera þema "barn dagsins" en þann dag eiga bekkjarfélagarnir að segja eitthvað jákvætt um viðkomandi barn.
Gullmolinn minn fekk eftirfarandi  frá sínum félögum.

skemmtileg
kát
falleg
kurteis
góður vinur
svöl
lærdómsfús
fallegt hár
góð vinkona
fljót að hlaupa
hjálpsöm
varkár
gjafmild
bjartsýn

Bekkjar felagarnir gleymdu að segja að hún ætti æðislega mömmu Saklaus


Hvað getur maður sagt og hvernig virkar þetta á sjálfstraustið? bara fallegt frá fallegum börnum. Þetta ættu fullorðna fólkið að gera á hverjum degi segja eh fallegt um vinnufelaga , vini og fjölskyldu já og kaupmaninn á horninu.
 Þið eruð yndisleg öll

kveðja Lilja ljúflingur

FeršalagKęrleiksheimur Lilju

Við Íris Mjöll  ætlum að skella okkur til Bolungarvíkur í nokkra daga þar býr litla systir ásamt fjölskyldu sinni. Við förum nátturulega með fokker flugvel og njótum um leið þæginda um borð Glottandi. Mamma kemur líka með , okkur hlakkar mikið til að hitta Þorgeir 16 ára (bráðum) sem elskar að skoða bloggið mitt og gera grín af stafsetningu minni þetta er einlægur og dásamlegur strákur sem á svo stórt pláss í hjarta mínu, svo er það  Hrannar Þór, Íris getur ekki beðið með að leika og grallarast með honum. Hann er mikill framkvæmdamaður kom ma annars þeirri hugmynd að rennibraut væri nauðsynleg við sundlaugina , auðvitað er hlustað á bæjarbúa og rennibrautin er komin var vígð í haust og Hrannar fekk manna fyrstur að renna sér. Vonandi er hún opin svo Íris geti prófað hana. Egill hamast við að gera við grillið til að geta grillað handa okkur skvísumdísum, milli róðra en hann er mikill fiskimaður og aflakló svo ég er stolt af honum. Enda er hann mjög skemmtilegur gaur og hefur mikinn húmor. Týra er kisan no more.................mjá .....................Bjarnþór er fluttur að heiman kominn til Rvk  í Háskóla,  en ég hitti hann aldrei Fýldur þarf að bæta úr því. Jóhanna er  kát kona og elskuleg systir sem hefur heillast af líkamsrækt og hollustu hún er svona Orkubolti..tók þátt í  liðakeppni í fitnes  um síðustu helgi rúmlega 40 ára dama stóð sig einstaklega vel ég er mjög stolt af henni Egill keppti líka og stóð sig líka vel svo ég segi ég er stolt af þeim báðum og hlakka til að vera með þeim í einhverja daga.  Boló hér kem ég hehehehe með ömmu og Írisi. Eitt að lokum... smá speki frá Söndru og Mark hahahahaha

Við ættum að einbeita okkur að framtíðinni –
það er þar sem við verðum að vera
þau ár sem við eigum ólifuð.
- Mark Twain

lötKęrleiksheimur Lilju

"Það sem drepur okkur ekki, styrkir okkur."
- Nietzche

ok þá drepur letin mig ekki ef þetta reynist satt....

70 mķn upp į toppKęrleiksheimur Lilju

Dagurinn var tekinn snemma á þessu heimili. Allir ofvirkir (nei nei)
Maríanna fór og dansaði af sér rass....... frá 01 -05

þá vaknaði Atli bar út fréttabalðið já já húrra hann vann vinnuna sína með hjálp pabba síns því kl 7:30 voru þeir feðgar roknir af stað æddu upp Esjuna ( upp á topp)  á 70 mín persónulegt met, mátu þeir stöðuna að nú væru þeir tilbúnir á Hvannadalshnúk, hjóla Laugarveginn og skokka Fimmvörðuháls og tölta Leggjabrjót ég ætla með amk í eh af þessu brölti Leggjarbrjótur er öruggur inni.

Esjan er það fjall sem ég ætla aldrei upp  aftur ( hef farið nokkrum sinnum)þegar ég fer á fjöll leiðist mer að þverfóta vart  innan um aðra garpa, svo mikil er trafikin upp á þetta fjall má ég biðja um Skeggja, Vífilfell og Keili, Helgarfell eru líka geim. Verð alltaf vör við pirringskippiÓákveðinn og neikvæðni þegar fólk fer að lofa Esjuna og þetta með að jólasveinar og Grylu dæmið búi þar nei nei nei bull þetta hyski velur sér virðulegri fjöll...ég veit það því ég hef hitt þetta hyski á öðrum fjöllum aldrei á Esju heheheheh.

Ekki má gleyma að ég fór í 70 mín þrektíma í Hreyfingu oooooooo það var frábært elska svona tíma með átökum og  meðlæti. Kl 9 var ég mætt og fullt af skemmtilegu fólki ( þarna vil ég hafa marga en ekki á fjöllum)

Íris er en veik og ætlum við settið a'ð hitta lækni í dag og láta skoða  stelpu skottið hún er svo slöpp að hún getur ekki verið að svekkja sig á því að missa af keiluferð með fótboltanum og keppni í fimleikum. Jamm hún er pott þett mikið veik þessi x orkubolti.

Þegar ég tal um að fara á fjöll þá gerðum við Jói mikið af því að prila upp og niður fjöll gistum í tjaldi og stundum í fúaskálum með músaskít. Mér er minnistæð ferðin í Fjörðum  dagur 1 í tjaldi á Látraströnd í Keflavíkinni var aftaka veður og ekki hægt að tjalda svo við sváfum inni í ógeðslegum kofa með músum og góðum vinum okkar sem við löbbuðum  með spiluðum og reyndum að sofa (allir sváfu nema ég) æddi ég út snemma .... allir voru þó teknir með  óðum stórfljót ( einu sinni lítill lækur) upp skriður og fetuðum einstigi sáum lítið vegna þoku sem betur fer því þegar við garparnir komum í Þorgeirsfjörð þá letti þokunni og omg þetta voru snarbrattar skriður sem við höfðum farið þverhnípt í sjó með kletum og ég hefði sennilega ekki labbað þetta ef ég hefði seð þetta fyrir áður. En við vorum stolt og löbbuðum áfram eftir langt og gott stopp áleiðis á næsta áfangastað
 góða helgi

Aš fara ķ sturtu eins og karlmašurKęrleiksheimur Lilju

kannast einhver við þetta...........

AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR:

Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu.

Ef konan sér þig á leiðinn, hristu þá "vininn" og segðu Vúúííí!!

Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk". Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum" , gríptu um hann og segðu ; " jú vonna pís of ðis beibí".

Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka - ekki nota hann ef þú rekst á hann. Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu.

Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búðu til móhíkana-kamb með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí). Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu).

Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn). Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).

Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna , dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gossann" , taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Ssssjabúmm."

Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og nú notaðir í gær.  


Ašalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Auglżsing

Gagnasafn

Innskrįningar kubbur

Klukkan

Leikur dagsins